 |
 |
 |
 |
 |
|
Wednesday, December 21, 2005
Gleðileg jól og farsælt komandi ár allir saman og hafið það sem allra allra best yfir jól og áramót Ég veit að ég ætla að hafa það notarlegt með kerti og spil og vonandi nýja bók...núna er ég allaveg syngjandi kát ...snjókorn falla á allt og alla gömlu lögin syngjum dátt, vinir....trallala en sjáumst sætabaunir;) kv.Guðrún jólastelpa
Posted at 03:34 pm by Dudda
Permalink
Sunday, November 13, 2005
pínku langt síðan ég var síðast en samt ekki svo..allavega hæ ég er meira á einhleypar blogginu en kannski skrifa ég e-ð hér við tækifæri eða ég veit ekki:) (ps. á morgun ætla ég að borða 1200 kaloríur og vonandi alladaga þar eftir, er geggjað spennt allir að prufa hot.is) sjáumst rúsínuhnoðrar;)
Posted at 03:23 pm by Dudda
Permalink
Wednesday, October 26, 2005
Fyrsta ferðin mín á slysó (7,9,13) ætlaði reyndar í skarthúsið
Í gær þá byrjaði dagurinn minn á því að ég vaknaði soldið of seint og hljóp í strætó, því tíminn sem ég átti að mæta í var módel teikning og þá er allt lok lok og læs ef maður mætir of seint, náði náttlega bussinum og teiknaði konuna sem sat fyrir (er ekki sagt æfingin skapar meistarann, vona svo sannarlega að það sé satt).
Síðan eftir hádegi fór ég í smíðatíma sem var alveg ágætis tími gerði reyndar lítið nema um hálf 4 datt mér í hug að gera kertastjaka, ég fór og sagaði og fann út hvernig ég vildi hafa hann, ahhh síðan fanns mér frábær hugmynd (þótt að ég vissi að helga væri á leiðinni að sækja mig og við ætluðum í skarthúsið) að fræsa hornin til að gera hann flottari ( hefði kannski betur sleppt því:) ) ég byrjaði að fræsa og svo allt í einu "KABÚSS" litli puttinn minn skaust í fræsarann og tættist (hljómar mjög illa ég veit) en hann er samt í heilu lagi, það koma alveg haf af blóði, kennararnir stukkku til og settu fínar umbúðir á sárin og sögðu þú færð bara ljóta ör.
Síðan fór ég út í bíl til Helgu bjargvættar algjörlega að drepast í litla putta, við ákváðum að fara til mömmu og fá meiri plástur og þannig, ég þurfti auðvitað að rífa upp umbúðirnar til að sýna mömmu og konunum þar puttann. þeim fannst þetta hálf ógeðslegt og ætluðu að setja einhver teib á sárin til að halda þeim saman en það koma bara meira blóð og þá endaði ég uppá slysó, (greyið helga fékk ekkert að fara í skarthúsið) læknirinn voða fyndinn kall fór e-ð að grína með afhverju ég hefði verið í kallmanns verki voða sniðugur, en síðan deyfði hann puttann minn og blóðtæmdi (það var ógó) og saumaði svo 6 spor í tætta puttann minn og ég fékk stærstu umbúðir sem ég hef séð á fingri hingað til (kæmi örugglega 3 puttum inní þær), stóru umbúðirnar þurfa að vera á í 3 daga, er hálf handlama.. puhu.. en þetta var allt samt þræl fyndið ég og helga bjargvættur hlógum mikið inná slysó og ennþá meira þegar við vorum kommnar út "þessar umbúðir sko":oD en það var í gær í dag er þetta ekki eins fyndið en ég losna við saumana á miðvikudaginn og þá verð ég heil á ný:) Takk fyrir þolinmæðina Helga
kv.Guðrún með tættann litla putta:(
Posted at 11:36 am by Dudda
Permalink
Thursday, October 13, 2005
Spakmæli dagsins: Það er skammgóður vermir að pissa í skó sinn. þetta fann ég í skóladagbókinni minni, takk fyrir mig og eins og afgreiðslu strákurinn á essó sagði eigðu góðann dag :) kv Guðrún
Posted at 01:49 am by Dudda
Permalink
Saturday, October 08, 2005
VÁvává áðan keypti ég mér bollastell flöskugrænt og geggjað flott fyrir 12 manns eða bara bolla og undirskálar, núna verð ég að læra að drekka kaffi:) reyndar keypti ég meira af svona elshúsdóti og er alveg þrælhamingjusöm með þetta, datt nebblega inná svona markað gamall lager og þetta var bara æðislegt:) hmmmm núna verð ég bara að finna eldhúsið í stíl við þetta allt saman......
í gær féll ég pínku á bindindinu mínu en samt ekki fékk mér drykk og hálfan bjór og langaði bara ekkert í meira sem er geggjað gaman:)
kv.Guðrún ( mig langar geggjað í íbúð, vill einhver gefa mér??? eða finna fyrir mig ríkann kall sem er til í að kaupa handa mér;) )
Posted at 12:16 pm by Dudda
Permalink
Saturday, October 01, 2005
Jæja hvað segiði? ég segi bara allt frábært:) Núna er maður bara orðinn fullorðnari heldur en maður var vúpsí neinei það er gaman:) Allt að breytast í mínu lífi einhvernegin en á góðan hátt, maður er að taka sig á sem er bara brjálað skemmtinlegt:) (samt pínku erfitt)
Ég er sko búin að finna mér tvo uppáhaldstíma í skólanum eða á þriðjudögum er uppáhalds tíminn minn sjónlist þar erum við að gera brjálað skemmtinlega hluti módelteiknig og allskonar þannig dót og svo á fimmtudögum er uppáhalds tíminn minn málmhönnun, þar má maður hanna sína eigin skartgripi og smíða og smíða lampa og læti:), fyndið að upplifa það að hlakka alltaf til að mæta í tíma:) hinir áfangarnir eru sko líka frábærir en þessir standa upúr eða allaveg þessa vikuna:) Í dag í vinnunni var ég að syngja pósturinn páll (pósturinn páll, pósturinn páll, pósturinn páll og kötturinn njáll, trallalalalala) með einum 3 ára sætum pjakk, við sungum bara á meðan mamma hans var að versla, frábær vinna:) Ég er reyndar í sorglega pakkanum þessa helgina eða líður alveg ágætlega með það , maður er að vinna og þjóna í veislum og vinna meira og læra pínku fyrir próf:) en ég vona að allir séu að hafa það gott eða skemmta sér brjálað vel (allt er e-ð svo brjálað hjá mér), sé ykkur "jamas":) Guðrún bíssi bissí
Posted at 06:14 pm by Dudda
Permalink
Thursday, September 22, 2005
Klukk klukk,hef ákveðið að svara klukkinu bara einu sinni :) Hún Helga átaksstelpa á afmæli á morgun, hún er sem sé 2 dögum eldri en ég óheppin;) hehe nei vona að þú eigir frábærann morgundag sæta:)
tjá guðrún krulla
Posted at 11:26 am by Dudda
Permalink
Thursday, September 15, 2005
Það eina sem ég ætla að segja núna er "Til hamingju með 25 ára afmælið elsku besti Músi bróðir" ..............hann á afmæli í dag hann á afmæli í dag hann á afmæli hann Magnús hann á afmæli í dag veiveivei klapp klapp og þrefalt HÚRRA húrra húrra húrra.....(ég veit þú lest þetta, eins gott að þú kommentir ;O) )
Posted at 04:58 am by Dudda
Permalink
Tuesday, September 13, 2005
Góða kvöldið, þetta er svo sannarlega afmælistími, á næstunni eiga svo margir afmæli Músi (15.sept), Magga (20.sept), Helga (23.sept), ég (25. sept), Heiða (27.sept), Halla (nýja skóla vinkona mín)(27.sept), Þóra (10.okt), og Lauga (12.okt), vonandi er ég ekki að gleyma neinum annars er ég gleymin að eðlisfari svo mér er vonandi fyrirgefið;) En já hjá mér er annars lítið að ske, fór í æðislega sumarbústaðarferð kósí kósí með yndislegu fólki vantaði reyndar suma en þeir koma bara með næst:) Í skólanum er geggjað fínt er að fara að smíða skóhillu á vegg það verður áhugavert og svo er maður bara að teikna og gera teikniverkefni sem eru sum ansi strembin en alltaf gaman að læra e-ð nýtt...jebs jebs hún Sigurlaug er byrjuð að blogga á ný, það verður gaman:) en jæja ekki meira rugl þangað til næst ble ble
Posted at 01:25 pm by Dudda
Permalink
Wednesday, September 07, 2005
Hjálp....geitungur í svefnherbergi!!!!
Jerimías vaknaði við geitung JÁ GEITUNG, okey ég viðurkenni alveg að klukkan var búin að pípa einu sinni og ég ýtti á snoose en síðan bara hrökk ég upp við geitung svífandi yfir mér, ekki góð vakning, þannig að ég byrjaði daginn á því að klófesta geitung inní svefnherberginu mínu, núna er hann fastur í glasi...þvílíkur hetjuskaður, eitt af því sem ég lærði í pylsunum;) í skólanum er ég byrjuð að smíða, það er geggjað gaman er reyndar alveg skíthrædd við þessi stóru tæki sem eru þar, allskonar risa sagir og dót sem ég man ekkert hvað heita, en Helga sæta koma með þessa frábæru hugmynd um að smíða bókastand eða þið vitið svona undir matreiðslubók, og ég er búin að hanna svoleiðis og byrjuð að smíða mjög skemmtinlegt ferli, maður fær bara eina spítu (60*15 cm) til að vinna úr og svo á maður bara að láta hugmyndaflugið ráða eða eins og ég spyrja vinkonur sínar..takk takk, en jæja í dag er miðvikudagur og ég er að fara að vinna jei, svo kemur fimmtudagur og svo föstudagur og þá er komin helgi.. er það bustaðarferð??? hver veit kannski bara:) en bless í bili ...
Posted at 03:37 am by Dudda
Permalink
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
 |
|
 |